Maður á hesti er kóngur um stund.

09.02.2007 15:46:47 / bjollinn

Helgi loksins.

Flensan yfirgaf mig í nótt. Líklega hefur helvítið loks fattað það að það þarf eitthvað stærra og meira til að legja mig af velli. Tók sér hins vegar bólfestu í Alexöndru í staðin. Það var því fullhraustur karlmaður sem þreytti næringarfræðipróf rétt eftir hádegið og gekk framar björtustu vonum. Mér hefur reindar alltaf fundist mér ganga vel svo það er kannski bara best að segja sem minnst og bíða bara eftir útkomunni.Jæja hvað um það. Helgin framundan sem þíðir bara eitt. VINNA. Ég elska vinnu. Reindar áður fyrr fannst mér ekkert leiðinlegra en að vinna, reindi hreinlega að koma mér undan því. Eftir að ég fór að læra að verða kokkur breittist þetta allt. Í dag er vinnan það skemmtilegasta sem ég geri og mitt uppáhalds áhugamál. Verkefni helgarinar er stremmbið, 450 manna þriggja rétta veisla í Frímúrarahúsinu í Reykjavík. Undirbúningurinn þarf að vera mjög góður og ætlim við að byrja kl 16:00 í dag. Sjálfsagt endar þetta með mega fylleríi eins og kokkum einum er lagið. Það verður semt að vera í hófi þar sem á sunnudaginn bíða tveir nautskrokkar eftir að komast af beinunum.  Sem sagt, allt á hvolfi um helgina.

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.02.2007 01:13:10 / bjollinn

Láttu mig vera Fíflið þitt.

Ég held að ég sé búinn að lesa yfir mig. Er hreinlega ekki viss um að þeð sé nokkuð betra en að vera ólesinn. Þó hef ég lagt mitt að mörkum og betur verður ekki gert, svo mikið er víst. Svo virðist vera sem flensan sé aðeins að slaka tökunum á mér. 8)Gat allavegana borðað í dag. Þannig að allt virðist ætla að komast á réttan kjöl um helgina. Fékk samt nettan pirring í dag. :evil:Málið er að ég á skildmenni sem virðist hafa ofsa legar áhyggjur af mér. Spyr vinnuveitendur mína í hvert skpti sem hann hittir þá hvort ég standi mig ekki og hvort ég tolli en hjá þeim. Þess skal reyndar geta að áður fyrr var ekki hægt að stóla á það að ég væri í sömu vinnu dag frá degi. Eftir að ég byrjaði á Geysi lærði ég mína legsíu og á ég Geysisfjölskildunni margt að þakka. Það sem er að fara svona í pirrurnar á mér er það að þessi viðkomandi einstaklingur sem er svo áhyggjufullur yfir því hvernig ég stend mig hefur að meðaltali verið í þrem vinnum á hverju ári þau þrjú ár sem ég hef verið á Hótel Geysi. Skilaboð mí til þessa FRÆNDA míns eru: Láttu mig og mitt einkalíf í friði. Ekki veit ég til þess að ættingjar mínir hafi þurft að kvarta yrir átroðningi af mér og þess vegna vill ég ekki að verið sé að troðast á mér (asninn þinn):evil:. Sjáumst síðar.                       Bjöllinn.

» 1 hafa sagt sína skoðun

08.02.2007 00:16:56 / bjollinn

Allt er þegar þrennt er.

Ég veit svo sem ekki hvað ég er að gera mað því að skrifa blogg. Einstaklingur í námi sem þar að auki á ekki bót fyrir boruna á sér lifir mjög svo tilbreitngarlitlu lífi. Skólagangan er reindar bara að ganga furðu vel, búinn að taka eitt próf og fékk 7,5 (fljótfærnin varð mér að falli). Samt er því ekki að leina að sá djöfull sem ég hafði að draga síðasta vetur er farinn að láta á sér kræla. Ég er reindar ógtrúlega stoltur af sjálfum mér hvað ég hef verið góður í að kveða hann ú kútinn um leið og hann byrjar innreið sína. Hann er líka kannski búinn að fá meiri meðbyrr en áður þar sem ég er búinn að ligja í flensu þrifsvar sinum síðan um áramót. En allt er þegar þrennt er hann á ekki séns þegar ég er búinn að ná mér í þetta skipti. Það er líka bjart framundan í aura málunum. Vinna og lítil svefn er það sem koma skal :) og þannig vill ég hafa það. Reinndar þarf fólk sem kann ekki að segja nei að passa sig vel þegar kallað er á það úr öllum áttum í einu. Ef maður hefur ekki stjórn á hlutunum þá getur farið mjög illa. Geðveikin byrjar á föstudag. Sem betur fer ekki fyrr þar sem ég er að fara í mjög mikilvægt og erfit próf þann sama dag. Eftir það hef ég sæmmilegan frið til að vinna soldið.

Látum þetta duga í bili.

 

8)Kv. Bjöllinn.8)



 


» 1 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
RSS tengill
Gamalt blogg
Dagsetning
30. júlí 2010
Dagatal
júlí - 2010
S M Þ M F F L
123
45678910
11121314151617
18192021222324
25262728293031
FyrriNæsti
Myndasöfn
Myndasöfn